Stefán Jónsson

Stefán Jónsson er íslenskur myndlistarmaður, fæddur á Akureyri 1964. Hann stundaði myndlistarnám í Myndlista og handíðaskóla Ísland og School of Visual Arts í New York þar sem hann útskrifaðist með MFA gráðu árið 1994. Á myndlistarsýningunni „Það kalla ég rart“ sýnir Stefán u.þ.b. 50 myndir og 15 bómullarboli sem hann hefur búið til á síðastliðnum 15 mánuðum. Öll verkin sýna fugla sem eru algengir í íslenskri náttúru. Verkin eru unnin út frá ljósmyndum sem skornar eru í vínylfilmu og límdar á tréplötur af ýmsu tagi eða pressaðar á pappír eða bómullarboli. Titill sýnigarinnar er fenginn úr Íslandsklukku Halldórs Laxness og lýsir viðbrögðum Jóns Guðmundssonar Grindvíkings þegar Jón Hreggviðsson tjáir honum að sést hafi fuglar í loftinu á Íslandi.

Til baka