Hulda Hákon og Jón Óskar

Þegar sjómennirnir í Vestmannaeyjum sjá mig á bryggjurölti vita þeir ekki aðég er að skoða stakkana þeirra. Þeir vita ekki að mér þykja þeir skærgrænu og skærgulu ekkert sérstakir, en lyftist upp þegar ég sé einn klæddan í rauðgult. Rauðguli neon liturinn fer svo fallega við liti hafsins.Nýlega hitti ég sigmanninn á þyrlunni og við fórum að ræða liti. Hann sagði mér að norðmenn hafa rannsakað hvaða litur sjáist best úti í náttúrunni. Niðurstaðan var aðrauðguli neon liturinn hefur vinninginn.- Hulda Hákon‍Myndirnar á sýningunni hafa verið í vinnslu síðastliðin 10-11 ár. Þær hafa verið á kantinum meðan ég hefið unnið við aðrar myndir. Nokkrum sinnum hef ég útskrifað þær og merkt viðeigandi ártali en síðan tekið þær aftur upp og breytt.Fyrir vikið eru nokkur ártöl undir endanlegu útgáfuári sem er 2021. Þær voru í upphafi án titils en nefnast nú Liquid Paper eftir frægum leiðréttingavökva sem amerískur einkaritari, Bette Nesmith Graham, fann upp.Myndlistarmenn eiga sér alltaf fyrirmyndir í byrjun og þeir skipta tugum í mínu tilfelli, en líkast til er Bette einn af mínum stærstu áhrifavöldum því þegar ég byrjaði að myndskreyta greinar fyrir blöð og tímarit fyrir 40 árum notaði ég alltaf leiðréttingavökva á blekteikningar. Síðar þegar ég fór að vinna með olíu áttaði ég mig á því að ég vann með litina ans þeir væru leiðréttingavökvi. Bette lést aðeins 56 ára og hafði selt fyrirtæki sitt ári áður fyrir 175 milljónir dollara (að núvirði) til Gillette. Sonur hennar er Michael Nesmith, fyrrum gítarleikari The Monkees, sem notaði arfinn til að stofna MTV. - Jón Óskar

Til baka